245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

8.2.2010 12:50:39
Opið hús á Listatorgi 13. febrúar
Langar þig til skapa list eða hitta annað fólk sem er í listsköpun?

Laugardaginn 13. febrúar frá klukkan 13 til 17 verða opnar vinnustofur í Nýrri Vídd þar sem hægt verður að hitta félagsmenn í Listatorgi, sem munu leiðbeina gestum og gangandi með sýnikennslu í leirkeragerð, myndlist, glerlist, skartgripagerð, prjónagerð, kertagerð. Þau munu einnig fræða fólk um aðstöðuna í Listatorgi og jafnframt hverjir geta fengið þar aðstöðu til listsköpunar en félagið er öllum opið sem vilja vera með.

Púlsinn námskeið er einnig staðsett á Listatorgi og verður þennan laugardag með prufutíma klukkan 15:00 í jógaleikfimi fyrir þá sem vilja prófa einn tíma án endurgjalds.

Veitingahúsið Vitinn verður með nýbakaðar vöfflur, þeyttan rjóma og heitt kakó um kaffileytið gegn sanngjörnu verði.

Gallerí Listatorg er með úrval gjafavöru þennan dag sem endranær. Komdu og gerðu frábær kaup á handverki td. í fermingargjöf. Fólk hefur gert sér ferð úr höfuðborginni til þess að gera betri kaup í Gallerí handverksfólks í Listatorgi, vegna mun ódýrari verðlagningar á handverki hérna.

Í sýningarsalnum eru Anna Ósk og Gunnar með stórglæsilega ljósmyndasýningu.

Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 13.febrúar. Taktu daginn frá!



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka